PLENT Marine Kollagen - súkkulaðibragð 300g
PLENT fiski kollagen með súkkulaðibragði.
PLENT Marine Collagen er vatnsrofið (e.hydrolysed) collagen duft án gerviefna.
Hver eining inniheldur 300 gr. af PLENT Kollageni.
Ráðlagður dagskammtur er 10 gr. eða 2 matskeiðar.
30 skammtar.
Flestar tegundir kollagens koma frá nautgripum (bovine). Rannsóknir hafa þó sýnt fram á að fiski kollagen nýtist líkamanum mun betur. Marine kollagenið frá PLENT er framleitt úr non-GMO hágæða fiski og er alveg hreint þar sem það hefur verið prófað (batch tested) fyrir þungmálma.
100% NÁTTÚRULEG INNIHALDSEFNI:
PLENT marine kollagenið inniheldur náttúruleg bragðefni og engan viðbættan sykur né önnur aukaefni. Hægt ert að velja um súkkulaðibragð, berjabragð eða náttúruegt. Náttúrulega útgáfan inniheldur einungis eitt innihaldsefni - Kollagen. Súkkulaði og berja kollagenið inniheldur 60g lífrænt C vítamín (acerola) í hverjum skammti.
PLENT marine kollagenið leyist auðveldlega upp í heitu eða köldu vatni. Frábær viðbót í smoothie, út á grautinn, í kaffið, kakóbollann eða hvað sem er.
HVAÐ ER KOLLAGEN?
Kollagen er eitt mikilvægasta uppbyggingarprótein líkamans sinnir mikilvægum hlutverkum í líkama okkar. Það veitir mikilvægan stuðning fyrir vöðva og liði, brjósk, sinar, bein, liðbönd, húð, hár og neglur. Kollagen sér til þess að vefir haldist sterkir saman.
Framleiðslan minnkar eftir 25 ára aldur:
Líkaminn sér sjálfur um að framleiða kollagen en eftir 25 ára aldur þá minnkar framleiðslan. Ýmsir lífsstílstengdir þættir hafa einnig áhrif á minnkandi framleiðslu kollagens burt séð frá aldrinum. Líkt og reykingar, ofneysla á sykri og unnum kolvetnum, sjúkdómar og meltingarkvillar, skortur á næringarefnum og fleira.
Kollagen hefur mikilvægum hlutverkum að gegna í líkama okkar, meðal annars:
- Kollagen er eitt mikilvægasta uppbyggingarprótein líkamans
- Getur dregur úr liðverkjum.
- Styrkir beinin - kollagen getur hjálpað til með að koma í veg fyrir beinþynningu þar sem beinin eru aðallega búin til úr kollageni, hjálpar því við uppbyggingu beina og að halda þeim sterkum.
- Hjálpar til við að auka vöðvamassa og virkni vöðva.
- Stuðlar að hjartaheilsu og getur dregið úr æðakölkun.
- Ásamt því að hjálpa til með ýmsa meltingarkvilla líkt og leka þarma.
- Getur aukið styrk hársins og nagla, örvað vöxt og heilbrigði hársins.
Samantektarrannsókn hefur sýnt fram á að vatnsrofið kollagen (peptíð) bætiefni getur dregið úr einkennum slitgigtar og stífleika¹.
Önnur samantektarrannsókn yfir 8 smærri rannsóknir sýndi fram á að með því að fá 2,5-10g af vatnsrofnu kollaefni (peptíð) daglega frá fæðubótarefni mýkir kollagenið húðina, minnkar hrukkur og appelsínuhúð, ásamt því að bæta rakastig húðarinnar².
Heimildir:
¹García-Coronado JM, Martínez-Olvera L, Elizondo-Omaña RE, Acosta-Olivo CA, Vilchez-Cavazos F, Simental-Mendía LE, Simental-Mendía M. Effect of collagen supplementation on osteoarthritis symptoms: A metaanalysis of randomized placebo-controlled trials. International orthopaedics. 2019 Mar 14;43³:531-8.
²Choi FD, Sung CT, Juhasz ML, Mesinkovsk NA. Oral collagen supplementation: a systematic review of dermatological applications. Journal of drugs in dermatology: JDD. 2019 Jan;18¹:9-16.